Meirihluti þátttakenda í nýrri könnun Maskínu gátu ekki auðveldlega greint á milli raunverulegrar myndar og gervigreindarmyndar. 79,1% völdu ranga mynd sem gervigreindarmynd. 20,9% svöruðu rétt. Rúmlega helmingur landsmanna, eða 52,3%, hefur áhyggjur af þróun gervigreindar og áhrifum hennar til framtíðar; og nærri helmingur, eða 44%, telur að lýðræðinu standi mikil ógn af gervigreind. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Netvís sem byggist á niðurstöðum könnunar Maskínu. Ekkert grín að sjá í gegnum þetta Í könnuninni voru fólki meðal annars sýndar myndir af tveimur börnum og áttu að greina á milli þeirra. Önnur var búin til með gervigreind en hin ekki. Um 80% veðjuðu á ranga mynd. Haukur Brynjarsson, sérfræðingur hjá Netvís, segir að fólk hafi tilhneygingu til að ofmeta hæfni sína þegar kemur að gervigreind. „Svo er það auðvitað bara þannig að tæknin er orðin það öflug að það er bara ekkert grín lengur að sjá í gegnum þetta.“ Um 80% þátttakenda telja að gervigreindin komi til með að auka áróður á Íslandi frá erlendum aðilum. „Þetta er áhyggjuefni og ég held að punkturinn þar sé að þetta er enn eitt vopnið sem aðilar sem vilja hafa áhrif á umræðu eða vilja komast inn í upplýsingaumhverfi okkar hafa í sínu vopnabúri,“ segir Haukur. Hann segir einnig mikilvægt að efla fræðslu í skólum, fyrir alla aldurshópa, og á öllum sviðum samfélagsins. „Það er besta vörnin.“