Tónlistarkona sem fékk tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir mistök er ósátt við viðbrögð skipuleggjenda við mistökunum. Hún fékk tölvupóst sólarhring eftir tilnefningu þar sem henni var tjáð að tilnefningin hefði verið send á hana fyrir slysni en hún segir framkvæmdastjóra ekki svara símtölum.