Það er eitthvað ómótstæðilegt við rétt sem krefst lítils tilstands en skilar samt mikilli upplifun. Þessi kjúklingaréttur er einmitt þannig. Hann er einfaldur í grunninn en verður að sannkölluðum lúxus á diskinum: Húðin gullin og stökk, kjötið safaríkt og lungamjúkt.