Lokið er við að skipta út allri almennri lýsingu í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum á Vestfjörðum. Um er að ræða mikilvægt skref í átt að bættri birtu, auknu umferðaröryggi og nútímalegri lýsingarlausnum í göngunum. Gamla lýsingarkerfið samanstóð af um 30 ára gömlum lömpum, nánar tiltekið lágþrýstum natríumlömpum (SOX). Slík lýsing einkennist af gulum lit og takmarkaðri […]