Full vistun orðin dýr og konur taka að sér að vera meira heima

Foreldrar í tveimur stærstu sveitarfélögunum á Austurlandi eru óánægðir með nýjar gjaldskrár leikskóla sem gera það dýrt að vera með börn í fullri vistun. Könnun bendir til þess að í Fjarðabyggð hafi meira en helmingur foreldra stytt vistunartíma og það hafi í öllum tilvikum bitnað á vinnutíma kvenna. Helmingur segist hafa stytt vistunartíma Mörg sveitarfélög hafa gripið til þess ráðs að breyta gjaldskrá og hvetja þannig foreldra til að hafa börnin ekki lengi í leikskóla og sækja þau fyrr á daginn. Afl, starfsgreinafélag á Austurlandi, gerði kjarakönnun nýverið og spurði félagsmenn út í leikskólamálin. Óánægja var áberandi mest í Múlaþingi og í Fjarðabyggð og rúmur helmingur foreldra í Fjarðabyggð hefur stytt vistunartíma, eða 56% og voru það allt konur sem sögðust hafa hagrætt vinnutíma vegna þessa. „Það sem við sjáum er að í svörum sem við fáum í gegnum könnunina er að það eru eingöngu konur sem taka afstöðu til þessarar spurningar, varðandi breytingu á vinnutíma. Það eru konurnar sem eru að breyta vinnutímanum. Það er það sem við túlkum út úr þessari spurningu að þær séu að breyta vinnutímanum til að vinna minna. Okkur finnst það bara svakalega óheppilegt. Þetta er ekkert minna jafnréttismál en hvað annað. Við lítum þetta mjög alvarlegum augum,“ segir Birkir Snær Guðjónsson, varaformaður Afls. Dýrt fyrir þá sem hafa lægri tekjur Sveitarfélög hafa reynt að draga úr áhrifum breytinganna með lægri gjöldum fyrir einstæða foreldra til dæmis en samkvæmt útreikningum Afls hafa leikskólagjöld fyrir þá sem þurfa fulla vistun hækkað. „Tekjuviðmiðið, sem Fjarðabyggð setur til að fólk geti nýtt sér 50% afslátt af leikskólagjöldum, er 13,9 milljónir króna í árstekjur fyrir fólk í sambúð, eða rúmlega 1.158.000 kr. á mánuði, og 9 milljónir, eða um það bil 750.000 kr. á mánuði, fyrir einstæða foreldra. Fjölskyldur sem fara yfir það greiða fullt gjald, og greiða að jafnaði um 83,8% meira en þær sem falla undir lægsta tekjuviðmiðið,“ segir í grein um kjarakönnunina í fréttabréfi Afls. Birkir segir að það sé gjarnan tekjulægsta fólkið sem þurfi fulla vistun. „Oft eru þetta lægst launuðu störfin sem hafa ekki sveigjanleikann. Það er bara vinnutími frá átta til fjögur eða átta til fimm. Og þú verður bara að standa og fólk hefur ekki neinn sveigjanleika til að bregðast við breyttum aðstæðum á leikskólanum. Það er dýrt að vera með barn á leikskóla í fullri vistun,“ segir Birkir Snær.