Friðrik Dór – Þessi kjóll Þessi kjóll er annað lagið sem við fáum að heyra af væntanlegri plötu Friðrik Dórs sem kemur út á föstudaginn. Lag og texta semur Friðrik sjálfur en upptökustjórn og hljóðfæraleikur er í höndum Halldórs Gunnars Pálssonar. Tatjana – Háð þér Háð þér er smáskífa númer tvö af væntanlegri plötu tónlistarkonunnar Tatjönu. Lagið er að hennar sögn rafpopplag með smitandi laglínum. Marteinn Hjartarson, einnig þekktur sem Bangerboy, sá um upptökustjórn á laginu og allri plötunni, sem kemur út í maí. Undiraldan fimmtudaginn 5. mars Það er boðið upp á nýja íslenska tónlist frá Friðrik Dór, Guðmundi Péturssyni, Árna Vilhjálms, Cell7 og mörgum fleirum þessa vikuna í Undiröldunni. Guðmundur Pétursson – No Reality No Reality er nýjasta smáskífa Guðmundar Péturssonar sem kom út á streymisveitum 20. febrúar. Lagið fjallar um ástand okkar tíma og lýsir þreytunni á brenglun veruleikans sem aðalsamskiptavopni og stjórntæki samtímans. Guðmundur semur lag og texta og fær sér til aðstoðar við flutninginn Ragnheiði Gröndal og Andra Ólafsson sem syngja raddir. Andri leikur einnig á bassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Hreindís Ylva – Ást við fyrstu sýn Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm hefur sent frá sér lagið Ást við fyrstu sýn eftir Margo Mitchell og Þorstein Eggertsson. Hreindís Ylva syngur lagið, Rakel Pálsdóttir og Íris Lind Verudóttir eru bakraddir, Kristinn Snær Agnarsson spilar á trommur og Stefán Örn Gunnlaugsson spilar á ýmis hljóðfæri. Tryggvi – You are the reason Tónlistarmaðurinn Tryggvi Heiðar Gígjuson, eða bara Tryggvi, hefur sent frá sér eigið lag og ljóð sem heitir You are the reason. Honum til aðstoðar eru Karl Henrý Hákonarson og Arnar Guðjónsson sem sjá um hljóðfæraslátt, hljóðritun og lokafrágang upptöku. Rakel Björk x Elfar Logi – Heilsugæslan Heilsugæslan er þemalag gamanleiksins Heilsugæslan sem verður frumsýndur 12. mars í Tjarnarbíói. Leikararnir í verkinu, Rakel Björk Björnsdóttir og Elfar Logi Hannesson, syngja lagið og fara með öll hlutverkin í sýningunni. Upptökur, hljóðblöndun, hljóðfæraleikur og forritun var í höndum Garðars Borgþórssonar og Rakelar Bjarkar Björnsdóttur. Jane Telephonda – Gerum eitthvað algjörlega frábært Gerum eitthvað algjörlega frábært með Jane Telephonda er af plötunni Samhengið, sem kemur út 7. apríl. Boðskapurinn er einfaldur: Gerum eitthvað algjörlega frábært, fyrir aðra, fyrir börnin, fyrir okkur sjálf, fyrir heiminn sem við eigum, því lífið kemur okkur þá óforvarendis í opna skjöldu. Freydís Emma – Ítalía Freydís Emma Vilhelmsdóttir er 16 ára og sendi inn lag sitt Ítalía sem hún segir að hún hafi samið og gert alveg sjálf inni í stofu hjá sér og sé gríðarlega stolt af. Undiraldan þriðjudaginn 3. mars Það er boðið upp á nýja íslenska tónlist frá Friðrik Dór, Guðmundi Péturssyni, Árna Vilhjálms, Cell7 og mörgum fleirum þessa vikuna í Undiröldunni. Árni Vilhjálmsson – Afternoons Tónlistarmaðurinn Árni Vilhjálmsson hefur sent frá sér lagið Afternoons sem verður á plötunni Partly Cloudy. Árni er höfundur lags og texta ásamt því að spila á gítar og syngja, Daníel Friðrik Böðvarsson er á gítar, bassa og orgel en Agnes Árnadóttir í bakröddum. Cell 7 – All my friends Cell 7 stígur skref út fyrir þægindarammann frá vel þekktum hipphopptöktum og kafar inn í nýjar víddir undirheima hústónlistar. Henni til aðstoðar á ferðalaginu er raftónlistarframleiðandinn R/S/NNN eða DJ KGB eins og flestir landsmenn þekkja hann. HORDE – I'm asking you God Lagið I'm asking you God með Horde fjallar um þann stað í tilverunni þar sem allar leiðir virðast lokaðar og það eina sem eftir stendur er að leita á náðir æðri máttarvalda. Palli Banine tók lagið upp og vann það í samstarfi við belgíska og franska hljóðfæraleikara, sem færa laginu alþjóðlegan blæ. Að lokum var það hljóðblandað og fullunnið í framleiðslu á Íslandi. Axel O – Texas Town Plata vikunnar á Rás 2 er platan Texas Town með Axel O. Þetta er önnur breiðskífa hans og afrakstur þriggja ára vinnu í hljóðverum í Texas og á Íslandi. Hún er óður til Texas og þess mikla sambands sem Axel hefur átt við ríkið í gegnum áratugina. Kahnin – Ketamine Dream Áfram höldum við okkur í alíslensku köntríi og næstur er Kahnin sem var að senda frá sér lagið Ketamine Dream undir áhrifum frá sækadelísku rokki. Lagið og textinn er eftir Guðmund Jens Guðmundsson sem syngur og spilar á gítar, Jimmy Deer spilar á bassa, gítar og hljómborð og Jordan Perlson trommar. Halldór Eldjárn, Rakel Sigurðardóttir – Hér Rakel Sigurðardóttir og Halldór Eldjárn hafa sent frá sér lagið Hér sem er af væntanlegri þröngskífu. Þau semja lagið við texta Brynju Hjálmsdóttur. Öll platan er svo væntanleg 6. mars. Inntak verkefnisins er einfaldlega að semja lög við íslensk ljóð. Á plötunni má heyra ný lög við ljóð Brynju Hjálmsdóttur, Þórarins Eldjárn, Melkorku Ólafsdóttur og Huldu. Ástrós Sigurjónsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir – Milli svefns og vöku Lagið Milli svefns og vöku, í flutningi Ástrósar Sigurðardóttur söngkonu og Bryndísar Höllu Gylfadóttur sellóleikara, varð til sem eins konar kveðjubréf þegar föðursystir Ástrósar féll frá eftir langa baráttu við parkinsonssjúkdóminn. Undiraldan lagalisti