Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að húsleitir Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hjá Tosku ehf., sem rekur Lyf og heilsu, og SKEL fjárfestingafélagi hf. hafi verið lögmætar. Dómurinn var kveðinn upp í dag í sameinuðum málum félaganna gegn ESA.