Útför Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, sem gerð verður frá Hallgrímskirkju 13. mars verður send út á RÚV. Útför Davíðs verður opinber og hefur forsætisráðuneytið umsjón með undirbúningi athafnarinnar. Hún fer fram í samráði við fjölskyldu Davíðs. Samkvæmt verklagsreglum ráðuneytisins fá fyrrverandi forsetar og forsætisráðherrar opinbera útför. Davíð lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars, 78 ára að aldri. Hann var einn áhrifamesti stjórnmálamaðurinn á lýðveldistímanum og fjölmargir hafa minnst hans með skrifum á samfélagsmiðlum í vikunni. Tengdist Ríkisútvarpinu sterkum böndum um árabil Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að það sé við hæfi að þjóðin fái tækifæri til að fylgjast með útför Davíðs. „Davíð Oddsson setti sitt mark svo sannarlega á íslenskt samfélag um áratugaskeið, fyrst sem borgarstjóri og síðan sem forsætisráðherra í 13 ár, lengst allra sem gegnt hafa því embætti. Útför hans verður opinber og að höfðu samráði við forsætisráðuneytið og fjölskyldu hans var það mat okkar að það væri við hæfi að þjóðin fengi tækifæri til að fylgjast með útförinni í beinni útsendingu sjónvarps,“ segir Stefán. Sem ungur maður sló Davíð í gegn ásamt Þórarni Eldjárn og Hrafni Gunnlaugssyni í skemmtiþættinum Útvarpi Matthildi sem var á dagskrá útvarpsins snemma á áttunda áratugnum. Þá sýndi sjónvarpið leikrit hans Allt gott á páskum 1992, svo eitthvað sé nefnt. „Davíð var fjölhæfur maður og sinnti dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið um árabil og skrifaði sjónvarpsleikrit auk annarra ritstarfa. Hann tengdist því Ríkisútvarpinu sterkum böndum og við þökkum af heilum hug hans framlag á því sviði,“ segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.