Tony Gonzales, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas í Bandaríkjunum, hefur viðurkennt að hafa haldið við fyrrverandi aðstoðarkonu sína sem svipti sig lífi með því að kveikja í sér. Hann segist þó ekki bera ábyrgð á dauða hennar. Óháðir rannsakendur þingsins lögðu til á dögunum að siðferðisnefnd fulltrúadeildarinnar tæki mál Gonzales til rannsóknar.