Þorsteinn Víglundsson er nýr formaður Samtaka iðnaðarins

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins og fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra, var kosinn formaður Samtaka iðnaðrins til næstu tveggja ára á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu. Hann tekur við af Árna Sigurjónssyni sem gegnt hefur formennsku í 6 ár. Ellefu framboð bárust til almennra stjórnarsæta. Þau sem hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins: Bergþóra Halldórsdóttir, Borealis Data Center Freyr Friðriksson, KAPP Jón Eðvald Malmquist, Eykt Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, Nói Siríus Sigurjón Rúnar Rafnsson, Kaupfélag Skagfirðinga Viðar Erlingsson, EVP & CDO hjá JBT Marel Fyrir voru í stjórn: Hjörleifur Stefánsson, Nesraf rafverktakar Karl Andreassen, Ístak Sigrún Helgadóttir, Norðurál