Húsleitir hjá Lyfjum & heilsu og SKEL dæmdar lögmætar

EFTA-dómstóllinn hafnaði í dag kröfu Tosku ehf. og Lyf og heilsu hf. (Toska) og SKEL fjárfestingafélags hf. um ógildingu á ákvörðunum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um framkvæmd húsleitar hjá félögunum. Húsleitir voru gerðar í október 2024, í tengslum við rannsókn ESA á meintum samkeppnisbrotum Tosku og SKEL á smásölumarkaði með lyf hér á landi. Félögin töldu að ákvarðanir um húsleit væru ekki nægilega rökstuddar og að ekki væru fyrir hendi nægilegar vísbendingar um brot. Félögin töldu einnig að engin áhrif hefðu orðið á viðskipti milli EES-ríkja og að ESA hefði ekki haft lögsögu til að rannsaka meint brot, þar sem háttsemi fyrirtækjanna hefði þegar verið heimiluð samkvæmt íslenskum lögum í kjölfar samrunarannsóknar Samkeppniseftirlitsins. Toska hélt því einnig fram að rannsóknin bryti gegn réttaröryggi sínu og banni við endurtekinni málsmeðferð. EFTA-dómstóllinn sýknaði ESA af öllum kröfum Tosku og SKEL. Hann taldi að ákvarðanir um húsleit væru nægilega vel rökstuddar og að nægilegar vísbendingar til grundvallar húsleitinni væru til staðar. „Að þessu leyti lagði EFTA-dómstóllinn áherslu á að það væri tilgangur húsleitar að afla sönnunargagna sem gætu staðfest eða hnekkt slíkum vísbendingum ESA. Aðrar skýringar á háttsemi félaganna og aðrar upplýsingar kæmu til skoðunar á síðari stigum rannsóknarinnar.“