Betri fyrirmynd en Stjáni Blái

Fjölmenni mætti á fund Kompanís, viðskiptaklúbbs Morgunblaðsins og mbl.is sem haldinn var í Hádegismóum í dag. Gestur fundarins var athafnamaðurinn, íþróttamaðurinn, leikarinn, rithöfundurinn og höfundur Latabæjar Magnús Scheving og ræddi hann við Stefán Einar Stefánsson blaðamann Morgunblaðsins.