Íslendingar þurfi að liggja lágt

Geir H. Haarde, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Íslendingar geti treyst á að Bandaríkin standi við varnarsamninginn við Ísland og komi okkur til varnar, gerist þess þörf. Það sé þó háð því að Bandaríkin sjálf sjái hag af því.