Bræður settir í bann en fyrir­liðinn sér tæki­færi í skandalnum

Leikmennirnir tveir í norska liðinu KFUM sem sakaðir eru um vafasöm afskipti af fótboltaleikjum eru bræður að nafni Bilal og Moussa Njie. Fyrirliði liðsins lætur sér lítið um finnast og sér bara björtu hliðar málsins, enda að ganga í gegnum svona skandal í annað sinn á ferlinum.