Real Madrid hefur fjarlægst möguleg kaup á miðjumanninum Rodri frá Manchester City samkvæmt spænskum miðlum. Hinn 29 ára gamli spænski landsliðsmaður hefur verið orðaður við spænska stórveldið undanfarið, en nú virðist sem félagið hafi dregið sig í hlé í málinu. Ein helsta ástæðan er talin vera hátt verð sem Manchester City myndi krefjast fyrir leikmanninn. Lesa meira