Einhverfum er víst neitað um þjónustu á grund­velli greininga

Heilbrigðisráðherra var í Kastljósi þann 4. mars sl. þar sem umfjöllunarefnið var geðheilbrigðiskerfið og málefni einhverfra innan þess. Þar sagði ráðherrann m.a.: „En auðvitað tekur langan tíma að byggja upp svona úrræði og það er þessi mikla innviðaskuld, meðal annars í geðheilbrigðismálum og í þessum úrræðum fyrir einhverfa. Þannig við þurfum auðvitað bara að gera betur.” Ég fagna þessari afdráttarlausu viðurkenningu á ráðherra á stöðunni. Það er nefnilega fyrsta skrefið að viðurkenna stöðuna eins og hún er til að geta hafið uppbyggingu á löskuðu kerfi.