Þokugenið sannar sig og þrjú höfuð á hverri skepnu í Klausturseli

Óvenjumikil frjósemi reyndist í kindum á bænum Klausturseli á Jökuldal. Þegar fósturtalningamaður kom í sveitina í síðasta mánuði reyndust fjórar kindur fimmlembdar, 34 fjórlembdar og 155 þrílembdar. Þetta þykir mikið og fyrir talnaþyrsta má einnig geta þess að 275 eru tvílembdar, 58 einlembdar og 23 geldar utan gemlinga. Marteinn Óli Aðalsteinsson bóndi þakkar þetta ræktun á svokölluð Þoku-geni sem rakið er til ærinnar Þoku sem fæddist á Smyrlabjörgum árið 1950. Þá hefur góð sumartíð og gott ástand á fénu, þegar það var tekið inn í haust, hjálpað til. Guðfinna Harpa Árnadóttir, ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, segir þetta mjög mikla frjósemi og sennilega með því mesta sem vitað sé um á svo stóru búi. Marteinn Óli segir þetta ávísun á annir í sauðburði og mögulega verði talsvert um heimalinga, það eru móðurlaus lömb sem þarf að gefa pela. Samantekið verða því 2,12 lömb á hverja kind og er þá líka deilt niður á gemlinga sem verða veturgamlir í vor og geldar ær. Það má því með sanni segja að það séu þrjú höfuð á hverri skepnu í Klausturseli á Jökuldal en ekki bara tvö eins og sagt var um bæi þar sem vel gekk til forna.