Í Reykholti búa 370 manns. Þegar mikið liggur við eru dyrnar á félagsheimilinu Aratungu opnaðar og oftast er það kvenfélagið sem sér um bakkelsið og kaffið. Þetta er friðsæll byggðakjarni sem ferðamenn heimsækja eftir að hafa skoðað Gullfoss og Geysi; þarna eru Friðheimar; heimsfrægir eftir heimsókn Kardashian-fjölskyldunnar, Bjarnabúð, Vínstofan og veitingastaðurinn Mika. Grænmeti, kryddjurtir og jarðarber eru ræktuð í gróðurhúsum og bjáti eitthvað á réttir næsti maður fram hjálparhönd. Þetta kyrrðarsamfélag hefur samt verið í hálfgerðu áfalli eftir að sextugum palestínskum karlmanni með maltneskt ríkisfang var haldið föngnum á heimili sínu í þrjá sólarhringa, hann beittur miklu harðræði og ævisparnaði hans rænt. Hann verður hér eftir kallaður Maltverjinn til að einfalda frásögnina. Átti sér einskis ills von Hann var vel liðinn og harðduglegur starfsmaður í gróðurhúsi þar sem ræktaðar eru paprikur og steinselja og átti sér einskis ills von. Hann hefur þegar gefið skýrslu fyrir dómi en samkvæmt upplýsingum Spegilsins ætlar hann engu að síður að mæta þegar aðalmeðferðin hefst. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og lögreglustjórinn á Suðurlandi lýsti því sjálfur sem fordæmalausu. Nærri tvö ár liðu þar til ákæra var gefin út og samkvæmt upplýsingum Spegilsins hafa íbúar Reykholts verið undrandi á því hversu langan tíma þetta hefur tekið. Rétt er hins vegar að nefna að gögnin í málinu telja nærri tvö þúsund og fimm blaðsíður, og saksóknari þarf að gæta þess að hvergi sé veikan blett að finna á ákærunni. Sex verjendur, margir hverjir með mikla reynslu af sakamálum, verða snöggir að finna slíkan höggstað. Pabbinn júdódómari og dóttirinn júdókempa Fjórir af sex sakborningum tengjast fjölskylduböndum; elsti sakborningurinn er garðyrkjufræðingur á sjötugsaldri, dóttir hans og tengdasonur eru líka ákærð sem og bróðir tengdasonarins. Pabbinn er gömul júdókempa, var með dómararéttindi í júdó og dóttirin er með svarta beltið í júdó, hefur unnið Íslandsmeistaratitil og var valin júdókona ársins fyrir nokkrum árum. Í þessum hópi er líka karlmaður á þrítugsaldri sem í lok síðasta árs hlaut fimm ára dóm fyrir að stinga fjölskylduföður í Reykjanesbæ. Lýsingar á atlögunni í Reykholti eru allt að því reyfarakenndar - föstudaginn 19. apríl 2024 var Maltverjinn nýkominn heim til sín eftir vinnudag í gróðurhúsinu þegar þrír af sakborningunum sex eru sagðir hafa ruðst inn á heimili hans og veist að honum með ofbeldi. Í ákæru héraðssaksóknara er þessu lýst þannig að einn hafi bundið hendur mannsins saman með strigalímbandi en hinir eiga að hafa sparkað og barið hann í höfuð og líkama. Annar á að hafa snúið svo harkalega upp á vísifingur á hægri hönd að puttinn brotnaði. Þeir virðast hafa ætlað að flytja manninn eitthvað því þeir eru sagðir hafa komið honum fyrir í bíl. Þaðan tókst Maltverjanum hins vegar að flýja en einn sakborninganna er í ákærunni sagður hafa hlaupið hann uppi og fellt og sparkað bæði í höfuð hans og líkama. Haldið frá vatni og mat Maltverjanum var síðan haldið föngnum á heimili sínu í þrjá sólarhringa; frá föstudegi til mánudags. Hann hefur lýst því hvernig mat og drykk hafi verið haldið frá honum, honum ógnað og hann jafnvel settur í sturtuklefa. Héraðssaksóknari fer í ákæru sinni yfir þær ógnanir sem Maltverjinn er talinn hafa mátt þola; tengdasonurinn á að hafa dregið fram hníf, otað að honum haglabyssu og hótað því að skera hann á háls eða skjóta hann í höfuðið. Pabbinn er í ákærunni sagður hafa ógnað manninum með keðjusög og hótað því að sigla með hann til Grænlands þar sem honum yrði hent útbyrðis. Þessi helgi í apríl hefur haft langvarandi áhrif á líf og heilsu Maltverjans; hann hefur lýst martröðum sem haldi fyrir honum vöku, hann sé stöðugt á varðbergi og hann nærist illa vegna áverkanna sem hann hlaut. Hann var kjálka-, rifbeins- og nefbrotinn og hlaut blæðingu á framheila. Hann vill fjórtán milljónir í skaða- og miskabætur. Fullyrðingar um leiguskuld taldar rótin að öllu Fólkið virðist fyrst og fremst hafa verið á höttunum eftir ævisparnaði mannsins; rótin að þessu öllu er í ákærunni sögð hafa verið fullyrðingar pabbans um að Maltverjinn skuldaði honum leigu. Ef marka má ákæru héraðssaksóknara reyndi fólkið allt. Pabbinn, sem allir í Reykholti þekkja og vita hver er, er í ákærunni sagður hafa farið í útibú Landsbankans, rætt þar við þjónustufulltrúa og reynt að fá upplýsingar um hvernig væri hægt, án aðkomu Maltverjans, að fá aðgang að bankareikningum hans og rafræn skilríki í nafni hans. Að lokum eru þau sögð hafa ekið með manninn til Reykjavíkur, neytt hann til að fara í verslun Símans í Ármúla og látið hann blekkja starfsmann til að setja upp rafræn skilríki í síma sínum. Þau skilríki voru síðan notuð til að kaupa farmiða fyrir hann til Parísar og þaðan til Möltu og til að millifæra milljónirnar sem hann hafði safnað sér yfir á reikning fólksins. Saksóknari vill að armbandsúr frá Versace og Boss verði dæmd upptæk Saksóknari segir að þegar þeim hafi tekist þetta ætlunarverk sitt hafi þau keyrt manninn upp á flugvöll, fylgt honum inn í flugstöðina, talið honum trú um að fylgst yrði með honum og að dóttur hans yrði gert mein færi hann ekki flugið. Þess er getið í gögnum að fólkið hafi reynt að farða manninn til að hylma yfir áverka hans en það er ekki að finna í ákærunni. Þegar maðurinn komst til Möltu við illan leik tók hann leigubíl að heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar þar sem hann missti meðvitund og var í framhaldinu fluttur á sjúkrastofnun. Lögreglu tókst að endurheimta stóran hluta af peningunum sem fólkið millifærði; eða þrettán og hálfa milljón. Saksóknari segir að fólkinu hafi tekist að eyða eða fela rúmar fjórar milljónir en meðal muna sem embættið krefst að verði dæmdir upptækir eru armbandsúr frá Michael Kors, Versace og Boss, hálskeðja og herrahringur.