Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars er jafn mikilvægur nú sem áður. Dagurinn er mikilvægur um allan heim og við, Soroptimistar notum tækifærið og tölum einni röddu fyrir réttindum, öryggi og framtíð kvenna og stúlkna. Þessi dagur er alþjóðlegur vettvangur til að fagna framförum en einnig vettvangur til að draga fram viðvarandi ójafnrétti og knýja fram breytingar í þágu kvenna og stúlkna.