Sandur safnast í Reynisfjöru á ný – útsýnispallur og skilti urðu öldunni að bráð

Mikill sjógangur var í Reynisfjöru í febrúar sem breytti ásýnd fjörunnar til muna. Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, ein af landeigendum í Reynisfjöru, segir ölduna hafa valdið miklum skemmdum. „Aldan gróf eiginlega í burtu útsýnispallinn og undirstöðurnar undir honum. Og tvö meginskiltin um hætturnar í fjörunni voru á útsýnispallinum. Við náðum að bjarga ljósaskiltinu inn en hitt skiltið fór áður en við náðum að bjarga því inn.“ Ragnhildur segir sandinn farinn að safnast upp á ný í fjörunni. Kambur hafi þó myndast niður í fjöruna og ekki sé hægt að komast í svokallaðan Hálsanefshelli. 9 ára þýsk stúlka drukknaði síðastliðið sumar eftir að hún festist í hellinum vegna sjógangs. „Eins og þetta er núna þá er einmitt minni hætta á því að fólk fari sér á voða því það er ekki að fara að taka einhverja sénsa að hlaupa inn í helli. Núna er þetta bara augljóst, þú átt ekkert erindi.“ Ragnhildur segir það góða tilfinningu að enginn sé að koma sér í hættu í fjörunni en á sama tíma leitt að horfa upp á landrofið og skemmdirnar á útsýnispallinum og skiltinu. „Við landeigendur erum að fara að funda í kvöld og þá tökum við púlsinn á hvort öðru, við erum náttúrulega bara í góðu samstarfi við Safe Travel og Ferðamálastofu og við erum með reglulega fundi og reynum að fylgja því eftir að skiltin séu uppi og það er fylgst með því dag frá degi hvort eitthvað sé hægt að gera og bæta og betrumbæta.“