Kynna áform um þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun

Utanríkisráðherra mun kynna þingsályktunartillögu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið á ríkisstjórnarfundi í fyrramálið og verður tillagan að óbreyttu lögð fram á þingi í næstu viku. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fari fram eigi síðar en 2027. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði í viðtali við RÚV í byrjun árs að tillagan yrði lögð fram á vorþingi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan verði síðsumars eða snemma í haust, líklegast seinni partinn í september. Samkvæmt lögum á þjóðaratkvæðagreiðsla að fara fram í fyrsta lagi þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkir tillögu þess efnis og í síðasta lagi einu ári. Áætluð þinglok eru í júní og ef tillagan verður meðal þeirra mála sem dragast fram að þinglokum gæti atkvæðagreiðslan farið fram í fyrsta lagi september. Þingflokkar stjórnarflokkanna funda á morgun vegna málsins sem bendir til þess að það eigi að keyra málið fljótt í gegn. Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009 og hófust viðræður formlega í júlí 2010. Hlé var gert á viðræðunum þegar ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók við völdum og árið 2015 lýsti þáverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, að viðræðunum hafi verið formlega slitið. Talsmaður stækkunarstjóra ESB sagði hins vegar í viðtali við RÚV í fyrra að sambandið liti svo á að umsóknin væri enn í gildi en aðildarríki ESB og framkvæmdastjórn sambandsins þurfi að ákveða næstu skref, fari svo að Íslendingar samþykki aðildarviðræður í þjóðaratkvæðagreiðslu.