Trump víkur Noem heimavarnaráðherra úr embætti

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Kristi Noem heimavarnaráðherra úr embætti. Öldungadeildarþingmaðurinn Markwayne Mullin frá Oklahoma tekur við embættinu. Ráðherrann hafði yfirumsjón með að koma innflytjendastefnu Trumps í framkvæmd. Bandaríkjaforseti greindi frá þessum breytingum í ríkisstjórninni í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Noem heldur þó áfram störfum fyrir bandarísk yfirvöld. Henni verður falið að leiða sérstakt öryggisátak fyrir vesturhval jarðar sem á ensku nefnist Shield of the Americas. AP / J. Scott Applewhite