Einróma ánægja með Kópavogsmódelið

Allir leikskólastjórnendur í Kópavogi eru hæstánægðir með Kópavogsmódelið svokallaða. Það hafi gjörbreytt starfsaðstæðum barnanna sem þar dvelja og brugðist við þeim stórkostlega vanda sem blasti við starfsemi leikskóla í Kópavogi.