Læknafélagið varar við tengingu bóta við vísitölu

Ályktun Læknafélagsins til velferðarnefndar Alþingis var nefnd í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun af Ingu Sæland sem flutti frumvarpið, þá félagsmálaráðherra, um tengingu bóta almannatryggingakerfisins við launavísitölu: „Ég er búin að fá hálfgert ógeð í orðsins fyllstu merkingu á því að hlusta á hverja silkihúfuna á fætur annarri hér úti í samfélaginu og nú nýjast Læknafélag Íslands. Þeir sem að meta fólkið til örorku. Þeir sem sennilega eru með meðaltal sex milljónir á mánuði í laun,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Aðspurð segir Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands ekki vita um neinn lækni sem er með sex milljóna króna mánaðarlaun. Formenn Læknafélagsins og Öryrkjabandalagsing greinir á um áhrif tengingar örorkubóta við launavísitölu. Stjórn Læknafélags Íslands hvetur stjórnvöld til að hætta við tengingu bóta við vísitölu. Í ályktun stjórnar Læknafélagsins er fjallað um áhrif breytinga á örorkukerfinu, sem gerðar hafa verið undanfarið, og þá er líka hvatt til að hætta við tengingu bóta við launavísitölu og neysluverðsvísitölu: „Í rauninni tengist okkar ályktun þessari launavístitölu mjög óbeint,“ segir Steinunn, „það sem við höfum áhyggjur af er að það er ákveðinn hópur þeirra sem eru á örorkulífeyri og þá aðallega hlutaörorku sem í rauninni þyrfti að taka á sig kjaraskerðingu ef viðkomandi færi aftur í fulla vinnu. Þá náttúrulega er hvatinn til að fara í fulla vinnu svolítið horfinn.“ Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands er ósammála og segir þetta ekki ranga hvata heldur að verði frumvarpið að lögum muni það bara efla fólk. Steinunn segir að skoða þurfi ástæður þess hve fólki á örorku hafi fjölgað mikið og að auka þurfi stuðning. „Tveir þriðju af þeim sem eru á örorkulífeyri eru á houm vegna andlegra veikinda. Við vitum að það er hægt að bæta úr þeim sem betur fer oft. Þannig að ég myndi halda að það væri ákveðið sóknarfæri þar.“ Alma Ýr tekur undir að vanti upp á, til dæmis það sem átti að efla með breytingum á örorku- og endurhæfingarkerfinu sem gildi tóku í haust. „Við finnum kannski svolítið fyrir því að endurhæfingarúrræðin eins og þau áttu að liggja fyrir við breytingarnar að þau hafa kannski ekki verið með þeim hætti sem þau áttu að vera.“ Steinunn vill taka fram að stjórn Læknafélagsins sé ekki með þessari ályktun að gagnrýna kjör ellilífeyrisþega eða örorkulífeyrisþega almennt: „Við erum bara að segja að þegar þessi öfugi hvati er til staðar að það þurfi að horfa eitthvað í það kerfi betur.“ Alma Ýr er á öndverðum meiði: „Það er ekkert berið að búa til núna einhvern annan hóp eða vettvang til þess að fjölga öryrkjum eða búa til ranga hvata. Ég bara kaupi það ekki.“