Fyrrum framkvæmdastjóri Viðreisnar fær oddvitasætið í Garðabæ

Guðlaugur Kristmundsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðreisnar, er oddviti Viðreisnar í Garðabæ í sveitarstjórnarkosningum í vor. Oddvitasætið var ákveðið á aðalfundi flokksins í Garðabæ í gærkvöld. Harpa Þorsteinsdóttir, varabæjarfulltrúi og lýðheilsufræðingur, skipar annað sætið og í því þriðja er Jón Bjarni Steinsson, lögfræðingur og viðburðahaldari. Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir, frumkvöðull og framkvæmdastjóri, skipar fjórða sæti. Framboðslisti formlega kynntur í kvöld Guðlaugur segist fullur tilhlökkunar til samstarfs og samtals við íbúa Garðabæjar á næstu mánuðum. „Garðabær er öflugt samfélag þar sem félagsauður er sterkur og íbúar láta sig þróun bæjarins varða. Við í Viðreisn viljum byggja áfram á þessum styrk, þar sem kraftar allra fá að njóta sín og tryggja að enginn verði skilinn eftir. Góður Garðabær getur orðið betri með sterkri og framsækinni sýn Viðreisnar í stjórn bæjarins.” Framboðslistinn verður kynntur formlega í kvöld í Hönnunarsafni Íslands klukkan átta. Þetta er í annað sinn sem Viðreisn býður fram í Garðabæ.