Síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran á laugardag og réðu æðstaklerk landsins af dögum hefur fjöldi ríkja dregist inn í átökin. Hezbollah í Líbanon gerðu árás á herstöð í Ísrael á mánudag í hefndarskyni fyrir árásir á Íran. Síðan hafa Ísraelar gert árásir á suðurhluta landsins. Samkvæmt ríkisfjölmiðlum í Líbanon hafa þeir drepið 102 hið minnsta og sært yfir 600. Nú hafa Ísraelar skipað öllum íbúum í suðurhluta Beirút, sem kallast Dahiyeh, að flýja vegna yfirvofandi árása. Þar halda Hezbollah til. Um 400.000 manns búa í hverfinu og umferðaröngþveiti var í dag þegar fólk lagði á flótta. Ísraelskur ráðherra hótar að Ísraelsher rústi hluta höfuðborgar Líbanons eins og Gaza. 400.000 manns búa í borgarhlutanum. Hezbollah eru með hluta starfsemi sinnar þar. Fjármálaráðherra Ísraels, Bezalel Smotrich, lýsti því yfir í dag að eyðileggingin í suðurhluta Beirút verði svipuð og á Gaza sem Ísraelar hafa lagt í rúst og verið sakaðir um þjóðarmorð þar. „Við erum við norðurlandamærin og fylgjumst með rýmingunni sem Ísraelsher fyrirskipaði. Þið vilduð senda okkur helvíti en fáið það sjálf. Dahiyeh-hverfið verður brátt eins og Khan Younis,“ sagði ráðherrann í dag.