„Er ekki alltaf ger­legt við þessar kring­um­stæður“

Á fjórða tug Íslendinga hefur komið sér frá hættusvæðum vegna átakanna í Miðausturlöndum eftir ýmsum leiðum. Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir að unnið sé dag og nótt við að aðstoða þá rúmlega 180 Íslendinga sem hafi tilkynnt viðveru á svæðinu.