FH minnkaði forskot Vals í 1 stig - markaveisla í eyjum

Fjórir leikir fóru fram í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. Topplið deildarinnar, Valur, tók á móti Íslandsmeisturunum í Fram í Reykjavíkurslag. Fram vann þann leik örugglega með 35 mörkum gegn 27. FH lagði Aftureldingu, 30-29, og minnkaði því forskot Vals á toppnum í 1 stig þegar tvær umferðir eru eftir. HK lagði Selfoss, 38-31, og í Vestmannaeyjum vann ÍBV ÍR með 44 mörkum gegn 40. Lokaleikur 20. umferðar er svo annað kvöld þegar Stjarnan tekur á móti KA. Rúnar Kárason skorar fyrir Fram gegn Val í úrslitakeppninni 2025.Mummi Lú