Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp
Alþingi samþykkti í morgun frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur. Með breytingunum er svokölluð stöðvaskylda tekin upp á ný og aukið eftirlit með starfsemi leigubifreiða.