Besti fiskurinn og franskarnar utan Bretlandseyja er á boðstólum á litlu veitingahúsi við Mývatn. Að þessari niðurstöðu komust dómarar alþjóðlegrar fiskréttakeppni í Lundúnum á dögunum. „Við vissum ekkert hvað við vorum að fara að gera, við höfðum aldrei rekið veitingastað. Þannig þetta er bara frábært, og verður ekkert mikið betra,“ segir Haukur Eiðsson, einn eigenda fjölskyldufyrirtækisins Fish and Chips Lake Mývatn, þegar sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum blésu til fögnuðar þeim til heiðurs á Sjóminjasafninu á Húsavík í gær. Þrjár fjölskyldur opnuðu saman litla veitingahúsið í Reykjahlíð árið 2022, sem hafði þá verið draumur í mörg ár. „Allir karlmennirnir í hópnum eru sjómenn í grunninn og þeir hafa rosalega sterkar skoðanir á því hvernig fiskurinn á að vera, mjög miklar skoðanir á því og við hnikum ekki frá því. Af því þeir eru bara nei. Því eins og Haukur sagði, það kom aldrei annað til greina en að fá fiskinn frá Sólberginu. Besta fiskinn. Besta fiskinn,“ segir Unnur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri. Lykillinn að heimsklassa fiski með frönskum er íslenskur gæðaþorskur. Þetta segja eigendur veitingahúss við Mývatn sem hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir besta fisk og franskar utan Bretlandseyja.