Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda kennir fákeppni um hækkandi olíuverð - því enn séu til olíubirgðir frá því áður en heimsmarkaðsverð hækkaði. Auðveldara sé að hækka í takt við heimsmarkaðsverð en að lækka. Fákeppnin að taka sinn toll Olíufélögin hafa hækkað olíuverð um þrjár til sjö krónur eftir tegundum síðustu daga. „Verðið er að hækka vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum en ég hef ekki orðið var við það að það séu að koma nýjar birgðir síðustu daga til Íslands. Þannig ég held að það sé bara fákeppni sem er að taka sinn toll. Og hitt er að við söknum ennþá lækkunarinnar sem ekki kom til skila í lok síðasta árs og byrjun þessa árs.“ Olíuverð á heimsmörkuðum hefur hækkað skarpt frá því að Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran. Eðlilegt að lækka álagninguna eins og sakir standa Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1 sagði í fréttum RÚV í gær að það væri eina ástæða hækkananna. „Það hvað við nýjan tón. Nú var hægt að hækka þegar heimsmarkaðsverð hækkaði en menn hafa hingað til verið mjög tregir til að lækka þegar heimsmarkaðsverð lækkar,“ segir Runólfur, og heldur áfram. „Ég tel eðlilegt að menn lækki álagninguna í augnablikinu allavega. við höfum séð að við kerfisbreytinguna sl. áramót þá hækkuðu félögin álagning hressilega. þannig ég hefði viljað sjá að menn héldu í sér, og sæju hvernig þróunin er - og vonandi heldur þessi þróun ekki áfram í Mið-Austurlöndum.“ Framkvæmdastjóri FÍB segir olíufélögin eiga til að hækka verð í takt við heimsmarkaðinn frekar en að lækka það. Hann kennir fákeppni um hækkandi verð.