Fimmtán sakborningar, nítján mál og ríflega hundrað úrskurðir
Hið minnsta fimmtán manns eru sakborningar í þeim nítján málum sem tengjast skipulögðum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar. Lögreglan fyrir norðan hefur lagt hald á kannabis í kílóavís og hafa fleiri en hundrað rannsóknarúrskurðir verið kveðnir.