Menntaskólinn á Egilsstöðum áfram í undanúrslit Gettu betur eftir öruggan sigur

Menntaskólinn á Egilsstöðum sigraði Borgarholtsskóla með 27 stigum gegn 15 í annarri viðureign átta liða úrslita í Gettu betur í kvöld. Liðið er því komið áfram í undanúrslit keppninnar eftir öruggan sigur. Lið Menntaskólans á Egilsstöðum skipa þau Auðun Lárusson Snædal, Steinar Aðalsteinsson og Sólgerður Vala Kristófersdóttir. Tvær viðureignir eru eftir í átta liða úrslitum keppninnar, fjögurra liða úrslit hefjast þann 26. mars, eftir næstu viðureignir kemur það í ljós hvaða skólar mætast. Lið Borgarholtsskóla skipuðu þau Jóhann Fróði Ásgeirsson, Daníel Orri Gunnarsson og Júlía Kristín Eyþórsdóttir. Næsta fimmtudag mætir Menntaskólinn í Reykjavík ríkjandi meisturum, Menntaskólanum við Hamrahlíð. Seinasta keppni 8. liða úrslita fer svo fram þann 19. mars þegar Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hér fyrir neðan má sjá keppni kvöldsins í heild sinni. Menntaskólinn á Egilsstöðum sigraði Borgarholtsskóla í annarri viðureign Gettu betur í átta liða úrslitum í kvöld.