Listi Viðreisnar í Kópavogi liggur fyrir

Lögfræðingurinn María Ellen Steingrímsdóttir leiðir lista Viðreisnar í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Uppstillingarnefnd kynnti listann í heild sinni á fundi flokksins í Kópavogi í kvöld. Annað sæti listans skipar Pétur Björgvin Sveinsson, varaþingmaður og starfsmaður þingflokks Viðreisnar, en hið þriðja vermir Arnar Grétarsson, knattspyrnuþjálfari og viðskiptafræðingur. Í fjórða sæti er Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, skólastjóri Hörðuvallaskóla. Vonast til þess að listinn veki athygli bæjarbúa María Ellen, nýkjörinn oddviti Viðreisnar í Kópavogi, kveðst þakklát fyrir allt það fólk sem sóst hafi eftir sæti á listanum að þessu sinni. „Ég hef fulla trú á því að nýr listi Viðreisnar í Kópavogi muni vekja athygli bæjarbúa og við hlökkum mikið til að kynna nýja stefnu sem hönnuð er með hagsmuni bæjarbúa á öllum aldri í huga,“ segir María. Framboðslisti Viðreisnar í Kópavogi í heild sinni: María Ellen Steingrímsdóttir - lögfræðingur Pétur Björgvin Sveinsson - varaþingmaður og starfsmaður þingflokks Viðresinar Arnar Grétarsson - knattspyrnuþjálfari og viðskiptafræðingur Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - skólastjóri Hörðuvallaskóla Elvar Bjarki Helgason - sölu- og þjónustustjóri Bryndís Rut Logadóttir - hjúkrunarfræðingur Ísak Leon Júlíusson - laganemi Irpa Fönn Hlynsdóttir - framkvæmdastjóri Ágeir Þór Jónsson - kokkur og atvinnurekandi Sigurlín Margrét Sigurðardóttir - frumkvöðull og leiðsögumaður Andrés Pétursson - stjórnandi Nordplus Sóley Eiríksdóttir - sagnfræðingur Máni Þór Magnason - heilbrigðisfulltrúi hjá HEF Þórunn Einarsdóttir - framhaldsskólakennari við Kvennaskólann í Reykjavík Þór Hinriksson - rafvirki Auður Gunnarsdóttir - vörustjóri Bergþór Skúlason - tölvunarfræðingur Inga Þórunn Halldórsdóttir- fyrrum skólastjóri Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson - verkefnastjóri á netöryggissviði Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir - verkefnastjóri Jón Ingvar Bragason - framkvæmdastjóri Kristín Þórhalla Rokk Þórisdóttir - kvikmyndaframleiðandi Heiðursæti listans skipar Kristrín Þórhalla Rokk eða Kidda Rokk eins og hún er betur þekkt sem.