Umferðarslys í Fossvogi: Kringlumýrarbraut lokað til suðurs

Ekið var á gangandi vegfaranda í Fossvogi í kvöld. Þetta staðfestir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samtali við fréttastofu. Ekki er fengust frekari upplýsingar að svo stöddu. Umferð til suðurs á Kringlumýrarbraut hefur verið lokað vegna slyssins og stýra lögreglumenn umferð bíla sem eiga leið hjá. Að sögn sjónarvotta var margt fólk og fjöldi bíla í grennd við staðinn sem slysið átti sér stað. Fréttin verður uppfærð.