Sækja Svía á átakasvæðin

Sænsk lögreglusveit lagði af stað í dag til Mið-Austurlanda í því augnamiði að vera sænskum strandaglópum innan handar í þeirri óöld sem þar hefur nú geisað síðan á laugardaginn þegar Bandaríkjamenn og Ísraelar réðust með oddi og egg á Íran.