Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur hjá BHM, segir barneignir geta haft umtalsverð áhrif á tekjuþróun og atvinnuþátttöku mæðra á vinnumarkaði. Hún nefnir í því samhengi eins konar „barnasekt“ og vísar þar með til þess þegar atvinnuþátttaka og tekjur kvenna lækka í kjölfar fyrstu barneigna. Sú þróun hafi bæði áhrif á konur og vinnumarkaðinn í stærra samhengi. „Við sjáum að atvinnuþátttaka kvenna lækkar um 20% við fyrstu barneign og þetta nær ekki aftur sama stigi fyrr en mörgum árum síðar,“ segir Sigrún sem var á meðal viðmælenda í Kastljósþætti kvöldsins.