Donald Trump Bandaríkjaforseti ýjar að því að gripið verði til einhvers konar aðgerða gegn Kúbu þegar hernaðaraðgerðum linnir í Íran. „Við ætlum að klára þetta fyrst, en það er bara tímaspursmál hvenær þið og fleira frábært fólk getið heimsótt Kúbu aftur,“ sagði Donald Trump í ræðu við móttöku í Hvíta húsinu. Hann sagði utanríkisráðherrann Marco Rubio hafa staðið sig sérstaklega vel gagnvart Kúbu en ráðherrann er sonur kúbverskra innflytjenda. Hvorugur hefur farið í grafgötur með áhuga sinn á stjórnarskiptum í landinu. Þrátt fyrir að almenningur á Kúbu sé tekinn að gagnrýna stjórnarhætti kommúnistastjórnarinnar hástöfum óttast margir hernaðarafskipti Bandaríkjanna, ekki síst vegna mikils þunga árásanna á Íran þar sem æðsti klerkurinn Ali Khamenei var drepinn. Engin olía hefur verið flutt til Kúbu síðan 9. janúar sem hefur dregið verulega úr flugferðum þangað og orðið til að dýpka efnahagskreppuna.