Formaður Þristavinafélagsins segir að lýðræðislega hafi verið staðið að sölu á þristinum Gunnfaxa á síðasta ári. Hann telur að vissulega væri best að geyma vélina í hituðu skýli í stað þess að hafa hana úti undir berum himni en treystir nýjum eigendum þó til að sjá vel um vélina.