Arna verður fyrst til að keppa á Sumar- og Vetrarólympíumóti og er spennt

Arna Sigríður Albertsdóttir verður fulltrúi Íslands á Vetrarólympíumótinu. Hún keppir í skíðagöngu og verður fyrst Íslendinga til að keppa í þeirri grein á Ólympíumóti. Hún er jafnframt fyrst íslenskra kvenna til að keppa bæði á Sumar- og Vetrarólympíumóti því hún keppi í handahjólreiðum í Tókíó 2021. Arna Sigríður var við æfingar í Noregi í aðdraganda mótsins en er komin til Predazzo þar sem hún keppir í næstu viku. „Ég er alveg spennt fyrir því að læra þessar brautir alveg. Auðvitað verður snjórinn aðeins mismunandi þannig að það verður fínt að prófa það,“ segir Arna Sigríður. Setningarathöfn Ólympíumótsins er í kvöld klukkan 19 og verður sýnd beint á RÚV 2. Alls eru sýndir á þriðja tug viðburða á mótinu á sjónvarpsrásum RÚV og má finna nánari upplýsingar um útsendingarnar hér.