Lægðin sem olli hríðarveðri suðvestanlands í nótt er nú kyrrstæð fyrir vestan land og verður allhvöss eða hvöss sunnanátt með rigningu eða slyddu á láglendi en úrkomulítið verður norðaustanlands. Hitinn verður 1 til 7 stig en það kólnar í kvöld með éljum vestantil.