Ísraelsk stjórnvöld segjast hafa fært stríðsreksturinn gegn Íran upp á annað stig og hófu stórfelldar árásir á innviði höfuðborgarinnar Teheran í morgun. Eyal Zamir, yfirmaður Ísraelshers, segist hafa óvænt útspil uppi í erminni sem ekki standi til að segja frá. Tilgangurinn sé að tortíma klerkastjórninni og öllum hernaðarmætti hennar. Bandaríski varnarmálaráðherrann Pete Hegseth boðaði einnig aukinn árásarþunga gagnvart Teheran og gervöllu Íran. Brad Cooper, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, segir yfir þrjátíu írönskum skipum hafa verið sökkt frá því ráðist var til atlögu að landinu fyrir tæpri viku. Einnig hafi dregið mjög úr árásargetu Írans. Við upphaf sjöunda dags stríðsins bárust tilkynningar frá Katar um að dróna hefði verið tortímt sem stefndi að bandarískri herstöð og stjórnvöld í Líbanon tilkynntu að 123 hefðu samtals verið drepnir frá því Ísraelsher hóf að gera árásir á landið. Stjórnvöld í Barein segja íranska eldflaug hafa hæft hótel og tvö íbúðarhús án þess að nokkur týndi lífi. Sádar grönduðu þremur eldflaugum á leið inn í lofthelgi landsins. Þrettán hafa verið drepnir í Persaflóaríkjunum frá upphafi stríðs, sjö þeirra almennir borgarar, þar á meðal ellefu ára stúlka í Kúveit. Eldur kviknaði í íbúðarbyggingu í ísraelsku stórborginni Tel Aviv eftir eldflaugaárás sem íranski byltingarvörðurinn kveðst hafa staðið fyrir. Íranskir miðlar greina frá háværum sprengingum víðs vegar um Teheran. Íran er nánast netsambandslaust og því berast lítil tíðindi af líðan almennings. AFP-fréttaveitan segir að nokkur merki hafi verið um að daglegt líf héldi áfram með nokkuð venjulegum hætti í Teheran þrátt fyrir þungar árásir. Liðsmenn öryggissveita stjórnvalda eru sagðar víða á ferli. Hezbollah-hreyfingin í Líbanon hvetur til brotthvarfs hvers og eins sem býr innan við fimm kílómetra frá landamærunum að Ísrael. Hreyfingin segir í færslu á Telegram að atlögum Ísraelshers gegn borgaralegum innviðum og brottrekstri almennra borgara verði svarað af fullri hörku. Í nótt hafi eldflaugum verið skotið á ísraelskar landamærastöðvar, herstöð á Gólanhæðum og flotastöð í borginni Haifa. Ríkisfjölmiðill Líbanons segir Ísraelsmenn hafa gert loftárásir á nokkra bæi í landinu sunnan- og austanverðu. Tugir þúsunda hafa flúið heimili sín eftir viðvaranir Ísraelshers um árásir og suðurhluti Beirút er nærri mannlaus. Donald Trump Bandaríkjaforseti vill eiga sinn þátt í að velja næsta leiðtoga Írans og útilokar að það verði Mojtaba, sonur æðstaklerksins Ali Khamenei sem var drepinn í loftárás á laugardag. Trump segir Mojtaba Khamenei lítilfjörlegan mann. „Við viljum einhvern sem færir Írönum frið og jafnvægi,“ sagði Trump í viðtali við vefritið Axios og hótaði að stríðinu lyki ekki fyndist ekki vænlegri kostur. Mojtaba Khamenei er hálfsextugur sjítaklerkur og hefur aldrei gegnt opinberu embætti en er sagður hafa mikil ítök að tjaldabaki vegna sterkra tengsla við byltingarvörðinn. Fyrr í vikunni staðhæfðu nokkrir íranskir miðlar að sérfræðingaráð landsins hefði þegar útnefnt Khamenei sem æðstaklerk.