Kröpp og djúp lægð er vestur af landinu eftir að skil hennar gengu yfir í nótt. Þrátt fyrir að hlýjasti hluti veðrakerfisins sé nú yfir okkur fylgir því blönduð úrkoma í dag, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum. Búast má við minni úrkomu á Austurlandi, hægari vindi og hærri hitatölum. Í kvöld verður lægðin farin að grynnast og þá dregur úr vindi. Á morgun verður vindur suðvestlægari og það gæti slegið í storm allra vestast á landinu. Hægari vindur annars staðar. Þá kemur veður til með að kólna. Úrkoman verður því vetrarlegri og skyggni lélegt. Á sunnudag er útlit fyrir mun skaplegra veður, hægari vind og bjartviðri austanlands, en fremur úrkomusamt sunnan og vestan til.