Síminn búinn að glamra í fjóra ára­tugi

Sofin og vakin hafa hjónin Jóna Björg Óskars­dóttir og Víglundur Jón Gunnars­son sett mark á bæjar­braginn í Nes­kaups­stað með fjöl­breyti­legum og persónu­legum verslunar­rekstri í rúm 40 ár. Nú er þó mál að linni, Víglundur hefur staðið sína síðustu vakt í bygginga­vöru­versluninni PAN og fram undan er langt og langþráð frí.