„Er þessi heimur besti heimur allra heima?“ er spurningin sem bjartsýnismaðurinn Birtingur veltir fyrir sér í nýjum söngleik Leikfélags Akureyrar sem byggður er á skáldsögu Voltaire. Það er leikhússtjórinn sjálfur, Bergur Þór Ingólfsson, sem leikstýrir, þýðir og semur leikgerðina og má segja að sýningin reyni ekki bara á leikarana heldur einnig samkomuhúsið sjálft – sem komið er til ára sinna.