Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, fundaði síðasta sumar með hópi Repúblikana sem eru hæstráðandi á skrifstofum öldungadeildarþingmanna sem hliðhollir eru stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Til umræðu var bandalag Bandaríkjanna við Norðurlandaþjóðirnar og „menningarlegar stoðir vestrænna gilda í Evrópu“. Á meðal skipuleggjenda og þátttakenda voru Repúblikanar sem tóku þátt í tilraun til að stela forsetakosningunum 2020 fyrir Trump....