Ísland er í riðli með risum í undankeppni HM 2027; tapaði fyrir heimsmeisturum Spánar fyrr í vikunni og á morgun bíða tvöfaldir Evrópumeistarar Englands á fullum City Ground-vellinum í Nottingham sem tekur rétt ríflega 30 þúsund manns í sæti. Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir mætir þá liðsfélaga sínum hjá Bayern München; Georgiu Stanway. Ísland mætir tvöföldum Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta í Notthingham á morgun. Uppselt er á 30 þúsund manna völlinn. Já við höfum talað um þetta nokkrum sinnum. Við komum inn í leikinn frá tveimur algjörlega mismunandi pólum þannig að það verður bara spennandi að fá að kljást við hana á vellinum sem mótherja en ekki samherja. Aldrei séð svona flottan völl í kvennaboltanum Karólína Lea Vilhjálmsdóttir segist finna fyrir því að kvennaboltinn sé að stækka og sé langt kominn einmitt á Englandi. Já maður finnur fyrir því. Geggjaður völlur, ég er hrikalega spennt. Maður hefur ekki oft séð svona góðan völl í kvennaboltanum. En þetta er bara spennandi, maður tekur eftir því hvað þetta er alltaf að stækka og stækka og ég er bara hrikalega spennt fyrir framtíðinni. Leikur Íslands og Englands hefst klukkan 12:30 á morgun og verður sýndur beint á RÚV. Upphitun í Stofunni hefst klukkan 11:50.