Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum

Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau hugga sig við það að vera örugg, að eigin sögn, með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum.