Getum við ör­yrkjar siglt þjóðarskútinni í strand?

Ég er öryrki. Ég kaus ekki það hlutskipti. Veikindi, bráðahvítblæði sem ég fékk árið 2018 og í kjölfarið nýjar stofnfrumur eða mergskipti sem sumir kalla, gerðu það að verkum að ég hef ekki getað unnið síðan og mun eflaust ekki gera, því miður. Þetta er ekki valkostur hjá mér.