Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku

Mikill vatnselgur hefur myndast á veginum undir brúnni neðst í Ártúnsbrekku. Vatnið er djúpt á veginum, eins og meðfylgjandi mynd sýnir glögglega. Vegfarendur þurfa að sýna varúð en töluverðar leysingar eru á höfuðborgarsvæðinu.